
Mátataka
Heyrðu ehf. er samstarfsaðili okkar í mátatöku.
Dr. Einar Jón Einarsson heyrnarfræðingur tekur mát af eyrum fyrir alla okkar viðskiptavini. Einar getur einnig framkvæmt mælingar og veitt faglega aðstoð við alls kyns heyrnarvandamálum.
Bóka tímaUm Heyrðu ehf.
Hjá Heyrðu er lögð áhersla á að veita góða, faglega og persónulega þjónustu þegar kemur að heyrnargreiningu, meðferð á heyrnarkvillum og ráðgjöf.
Boðið er upp á meðferðir til að draga úr einkennum eyrnasuðs (tinnitus), hljóðóþols (hyperacusis) og hljóðóbeitar (misofonia). Þverfaglegt teymi sérfræðinga kemur að meðferðunum og eru þeir í samstarfi við aðrar fagstéttir Heilsuklasans sem og Heilsugæsluna Höfða.
Heyrðu býður upp á fjölbreytt úrval af heyrnartækjum, sérsmíðuðum heyrnarvörnum og öðrum heyrnartengdum búnaði frá svissneska framleiðandanum Phonak. Hægt er að fá heyrnartæki lánuð til prufu í þrjár vikur, endurgjaldslaust.
Heyrðu hefur þróað heyrnarþjónustu sem er sérsniðin að þörfum tónlistarfólks, tónlistarkennara og tónlistarnemenda. Við hjá Heyrðu leggjum einnig áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt úrval fyrirlestra tengdum heyrn. Markmið okkar er að fræðslan sé hagnýt og löguð að þörfum hlustenda.
Bóka tíma í heyrnarmælingu eða mátatöku
Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband við þig til að bóka tíma hjá Dr. Einari Jóni Einarssyni heyrnarfræðingi.
Fyrirspurnir sendast á:
- inear@inear.is
- mottaka@heyrdu.is